Sverrir Eyjólfsson er hættur þjálfun karlaliðs Fjölnis í handbolta. Fjölnir mun leika í efstu deild karla á næstu leiktíð en liðið lagði Þór í oddaleik um að fara upp á fimmtudagskvöld. Handbolti.is greindi frá
Sverrir Eyjólfsson er hættur þjálfun karlaliðs Fjölnis í handbolta. Fjölnir mun leika í efstu deild karla á næstu leiktíð en liðið lagði Þór í oddaleik um að fara upp á fimmtudagskvöld. Handbolti.is greindi frá. Ástæða uppsagnarinnar er sú að Sverrir vill meiri tíma með ungum syni sínum og fjölskyldu.
Fjölnir hafnaði í öðru sæti 1. deildarinnar á leiktíðinni og fylgir ÍR upp í efstu deild en ÍR fór beint upp.