Keith Starmer
Keith Starmer
Breski Íhaldsflokkurinn tapaði þingsæti til Verkamannaflokksins í aukakosningum í Blackpool á fimmtudag. Þá fóru einnig fram sveitarstjórnarkosningar og var útlit fyrir að Verkamannaflokkurinn hefði víða farið með sigur af hólmi á kostnað Íhaldsflokksins en úrslit lágu ekki fyrir í gær

Breski Íhaldsflokkurinn tapaði þingsæti til Verkamannaflokksins í aukakosningum í Blackpool á fimmtudag. Þá fóru einnig fram sveitarstjórnarkosningar og var útlit fyrir að Verkamannaflokkurinn hefði víða farið með sigur af hólmi á kostnað Íhaldsflokksins en úrslit lágu ekki fyrir í gær.

Keith Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins hvatti Rishi Sunak, forsætisráðherra og leiðtoga Íhaldsflokksins, til að boða til þingkosninga án tafar. Sunak þarf að boða til kosninga í síðasta lagi í janúar.