1 dós San Marzano-tómatar
1 stk. vel þroskaður tómatur
1 tsk. tómatpúrra
½ geiri hvítlaukur
½ tsk Piment d‘espelette (Fæst í Hyalin)
svartur pipar
eplaedik – eða annað edik sem er hendi næst
salt
Setjið allt saman í blandara og smakkið til með salti, pipar og ediki.
Steikið súrdeigsbrauðsneið á báðum hliðum á meðalheitri pönnu þangað til hún er orðin gullinbrún. Komið brauðinu fyrir á disk og setjið nóg magn af sósunni á brauðið og toppið með góðri ólífuolíu og kryddjurtum eftir smekk.
Einnig er hægt að bæta við Serrano-skinku og/eða Manchego-osti sem gerir brauðið enn betra.