Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir lenti í því óhappi að ferðatösku hennar var stolið á Ítalíu en hún sagði frá því á samfélagsmiðlinum Instagram. Laufey hefur verið á fleygiferð síðustu mánuði og er nú á tónleikaferðalagi um heiminn

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir lenti í því óhappi að ferðatösku hennar var stolið á Ítalíu en hún sagði frá því á samfélagsmiðlinum Instagram. Laufey hefur verið á fleygiferð síðustu mánuði og er nú á tónleikaferðalagi um heiminn. „Ferðatöskunni minni var stolið á Ítalíu. Ég vona að þjófurinn geti notið vintage-fatanna og aðdáendabréfanna,“ skrifar hún við myndina. „Við erum kannski ekki með nein nærföt en við eigum nóg að borða,“ skrifar hún við aðra mynd þar sem hún nýtur hádegismatarins. Lestu meira á K100.is.