Jeff Daniels og Diane Lane leika aðalhlutverkin.
Jeff Daniels og Diane Lane leika aðalhlutverkin. — AFP/Valerie Macon
Drama Sjónvarpsþáttahöfundurinn David E. Kelley situr ekki auðum höndum. Í vikunni kom inn á Netflix flunkuný smásería eftir kappann, A Man in Full, með engum öðrum en Jeff Daniels og Diane Lane í aðalhlutverkum

Drama Sjónvarpsþáttahöfundurinn David E. Kelley situr ekki auðum höndum. Í vikunni kom inn á Netflix flunkuný smásería eftir kappann, A Man in Full, með engum öðrum en Jeff Daniels og Diane Lane í aðalhlutverkum. Byggt er á samnefndri skáldsögu eftir Tom Wolfe. Daniels leikur fasteignamógúl sem lendir í fjárhagslegum hremmingum og þarf að verja veldi sitt gagnvart mönnum sem vilja ganga yfir hann á skítugum skónum. Lane leikur eiginkonu hans. Af öðrum leikendum má nefna Lucy Liu og William Jackson Harper.