Anne Hathaway er sparkelsk.
Anne Hathaway er sparkelsk. — AFP/Jamie McCarthy
Fótmenntir Mikla athygli vakti þegar bandaríska leikkonan Anne Hathaway fagnaði marki sem Leandro Trossard skoraði fyrir Arsenal gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dögunum á miðjum netfundi með blaðamönnum vegna sinnar nýjustu…

Fótmenntir Mikla athygli vakti þegar bandaríska leikkonan Anne Hathaway fagnaði marki sem Leandro Trossard skoraði fyrir Arsenal gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dögunum á miðjum netfundi með blaðamönnum vegna sinnar nýjustu myndar, The Idea of You, eftir að þessar ánægjulegu fréttir bárust henni til eyra, Hathaway er harður Arsenalmaður. Við tökur á þættinum The Today Show nokkrum dögum síðar birti stjórnandinn svo óvænt myndbandskveðju frá Trossard til Hathaway, þar sem hann þakkaði leikkonunni fyrir stuðninginn og kvaðst vonast til að sjá hana sem fyrst á Emirates, heimavelli Arsenal. Hathaway komst við.