Einar Jónsson, þjálfari karla- og kvennaliða Fram í handbolta, hefur næsta tímabil í leikbanni. Hann er kominn í eins leiks bann vegna rauðs spjalds í leik kvennaliða Fram og Hauka en aganefnd er með málið í frekari skoðun og áskilur sér möguleikann …

Einar Jónsson, þjálfari karla- og kvennaliða Fram í handbolta, hefur næsta tímabil í leikbanni. Hann er kominn í eins leiks bann vegna rauðs spjalds í leik kvennaliða Fram og Hauka en aganefnd er með málið í frekari skoðun og áskilur sér möguleikann á að framlengja bannið.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Atli Aðalsteinsson hafa komist að samkomulagi um að samningur Atla verði ekki framlengdur. Atli hefur verið þjálfari karlaliðs Skallagríms síðan árið 2019.

Handknattleikskonan Hulda Dís Þrastardóttir hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélagið Selfoss til næstu þriggja ára. Hulda hefur verið algjör lykilmaður í liði Selfoss undanfarin ár.