Ósáttur Jamal Murray var ekki í góðu skapi í tapleiknum.
Ósáttur Jamal Murray var ekki í góðu skapi í tapleiknum. — AFP/Matthew Stockman
Bandaríski körfuboltamaðurinn Jamal Murray, leikmaður Denver Nuggets í NBA-deildinni, hefur verið sektaður um 100 þúsund bandaríkjadali, jafnvirði 14 milljóna íslenskra króna. Þegar Denver tapaði öðru sinni fyrir Minnesota Timberwolves í…

Bandaríski körfuboltamaðurinn Jamal Murray, leikmaður Denver Nuggets í NBA-deildinni, hefur verið sektaður um 100 þúsund bandaríkjadali, jafnvirði 14 milljóna íslenskra króna. Þegar Denver tapaði öðru sinni fyrir Minnesota Timberwolves í undanúrslitum Vesturdeildarinnar kastaði hann handklæði og hitapoka í átt að dómara en atvikið átti sér stað í öðrum leikhluta og Murray sat á varamannabekknum. Hann fékk þó ekki leikbann.