María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Björn Hugason er íslenskur fatahönnuður sem stofnaði samnefnt fatamerki árið 2022. Fatalínan sækir innblástur í fornar íslenskar handverkshefðir með nýrri túlkun á hefðbundnu handverki, handlitunartækni og í mínímalísku formi.
Fatnaðurinn er unninn úr náttúrulegum og endurunnum textíl í hæsta gæðaflokki og er hvert eintak handlitað sérstaklega. Fatalínan er brú á milli fornra hefða og nútímahandverkslistar.
Þá kynnti Pétur Víglundsson klassískt vín fyrir gestum í bland við spennandi náttúruvín sem var í boði Vínklúbbsins. Gestirnir fúlsuðu ekki við því enda fátt betra en gott vín í góðu tískupartíi. Vörur Björns verða áfram fáanlegar í Kiosk.