Drake
Drake
Rappararnir Drake og Kendrick Lamar hafa löngum átt í illdeilum en um liðna helgi fór allt í háaloft upp þegar báðir sendu frá sér ný lög þar sem ásakanir á báða bóga mátti finna í textunum. Lamar sakaði ­Drake meðal annars um barnagirnd og að eiga…

Rappararnir Drake og Kendrick Lamar hafa löngum átt í illdeilum en um liðna helgi fór allt í háaloft upp þegar báðir sendu frá sér ný lög þar sem ásakanir á báða bóga mátti finna í textunum. Lamar sakaði ­Drake meðal annars um barnagirnd og að eiga launbarn en hann hefur í kjölfarið hafnað þeim ásökunum, segir AFP.

Í texta lagsins „Not Like Us“ með Lamar ávarpar hann Drake og segist hafa heyrt að hann vilji hafa þær ungar og rappar um „staðfesta barnaníðinga“. Í laginu „Family Matters“ gefur Drake í skyn að Lamar hafi verið unnustu sinni Whitney Alford ótrúr og jafnvel beitt hana ofbeldi. Drake hafnaði síðan ásökununum á hendur sér í laginu „The Heart Part 6“, sem kom út á sunnudag, og segist þar aldrei horfa tvisvar á unglinga.