Stjörnur skemmtanalífsins vestanhafs mættu í vikubyrjun á glyssýninguna Met Gala í New York. Viðburðurinn er haldinn í Metropolitan-listasafninu og er tilefnið að safna fé fyrir búningadeild safnsins, sem geymir margar frægar flíkur. Þema ársins var: „Þyrnirósir: Tískan endurvakin“ og klæddust margar stjörnur flíkum innblásnum úr blómaríkinu.