Vinna 149 manns verður sagt upp í hópuppsögn Grindavíkurbæjar.
Vinna 149 manns verður sagt upp í hópuppsögn Grindavíkurbæjar. — Morgunblaðið/Eggert
149 manns verður sagt upp störfum hjá Grindavíkurbæ frá og með 1. júní í hópuppsögn sem bærinn hefur kynnt vegna gjörbreyttra aðstæðna. Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, sat upplýsingafund með bæjarstjórn ásamt öðrum úr…

Hermann Nökkvi Gunnarsson

hng@mbl.is

149 manns verður sagt upp störfum hjá Grindavíkurbæ frá og með 1. júní í hópuppsögn sem bærinn hefur kynnt vegna gjörbreyttra aðstæðna.

Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, sat upplýsingafund með bæjarstjórn ásamt öðrum úr verkalýðshreyfingunni í gær þar sem fram kom að 149 myndu missa vinnuna og að í næstu viku verði ljóst hverjir muni verða fyrir barðinu á hópuppsögninni.

„Mér finnst ég ekki geta annað en sýnt þessu skilning,“ segir Hörður í samtali við Morgunblaðið.

Grindavíkurbær tilkynnti fyrir tveimur dögum að hópuppsögn væri yfirvofandi vegna gjörbreyttra aðstæðna.

„Ákvörðun um fækkun starfa er bæjarstjórn Grindavíkurbæjar afar þungbær, en bæjarfulltrúar eru einhuga um nauðsyn hennar. Aðgerðirnar verða sársaukafullar fyrir starfsfólk, fjölskyldur þeirra og aðra íbúa Grindavíkur, en eru forsenda þess að sveitarfélagið geti snúið vörn í sókn þegar aðstæður breytast. Bæjarstjórn er sannfærð um að með tímanum muni samfélag og mannlíf blómstra í Grindavík á ný,“ segir meðal annars í tilkynningu bæjarins.

Mismunandi viðbrögð

Fyrir liggur að ekki verður skólastarf í Grindavík á næsta skólaári og því segir Hörður að þetta hafi ekki komið sér á óvart.

Hann segir að nokkrir tugir félagsmanna hans séu líklega að missa vinnuna og að viðbrögð þeirra séu mismunandi. Flestir séu að velta fyrir sér hlutum sem snúa að réttindamálum, eins og veikindarétti, sumarfríi og orlofsrétti.

„Viðbrögðin eru auðvitað margskonar. Allt frá reiði yfir í létti,“ segir hann og bætir við:

„Mörgum hefur fundist þetta hafa hangið yfir og verið mjög óþægilegt,“ segir hann og útskýrir að mörgum sé létt yfir því að ákvörðun sé innan seilingar, þó ekki sé enn búið að kynna hverjir missa vinnuna.

Hörður telur að meginþorri þeirra sem missi vinnuna séu skólastarfsmenn en tekur þó fram að ekki sé enn komin út nánari útfærsla á því hverjir missi vinnuna.

„Ég legg bara áherslu á að þessu sé flýtt eins og mögulegt er svo að fólk þurfi ekki að vera lengi í bið og óvissu í viðbót. Á þessum tímapunkti legg ég mesta áherslu á það,“ segir Hörður.

Fannari Jónassyni, bæjarstjóra Grindavíkur, hefur verið falið það verkefni að hefja undirbúning og samráð við hagaðila í samræmi við lög um hópuppsagnir.