40 ára Ásta er fædd og uppalin á Húsavík. Hún lærði snyrtifræði og lauk bæði sveins- og meistaraprófi í greininni. Einnig nam hún næringarfræði við HÍ og lauk BSc-gráðu. Hún starfar hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í almennri löggæslu auk þess að reka Smiðjuna æfingabox ásamt fleirum

40 ára Ásta er fædd og uppalin á Húsavík. Hún lærði snyrtifræði og lauk bæði sveins- og meistaraprófi í greininni. Einnig nam hún næringarfræði við HÍ og lauk BSc-gráðu. Hún starfar hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í almennri löggæslu auk þess að reka Smiðjuna æfingabox ásamt fleirum. Áhugamálin eru húð- og snyrtivörur, hreyfing og næring en mest að fylgja börnunum eftir í þeirra ævintýrum.

Fjölskylda Eiginmaður Ástu er Hörður Ingi Helenuson, f. 1981, málari og saman eiga þau Ríkharð Val, 10 ára, og Hrafnhildi Dís, fjögurra ára. Stjúpbörnin eru Lorenzo, 18 ára, og Auður Diljá, 13 ára. Foreldrar Ástu: Hermannn Ragnarsson, f. 1951, d. 2023, og Irmý Dómhildur Antonsdóttir, f. 1953, búsett á Húsavík.