Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, hefur lagt fram í samráðsgátt landsáætlun um riðuveikilaust Ísland. Áætlunin er unnin af starfshópi sem var skipaður í byrjun ársins en vinnu hópsins leiddi Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir

Matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, hefur lagt fram í samráðsgátt landsáætlun um riðuveikilaust Ísland. Áætlunin er unnin af starfshópi sem var skipaður í byrjun ársins en vinnu hópsins leiddi Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir.

Áætlunin gerir ráð fyrir umtalsverðri breytingu á nálgun við útrýmingu riðuveiki frá því sem verið hefur. Horft er frá því að reyna að útrýma riðusmitefninu sjálfu en megináhersla lögð á að útrýma veikinni með ræktun fjárstofns sem ber verndandi arfgerðir gegn smitefninu ásamt áframhaldandi aðgerðum til að hefta mögnun og dreifingu þess, segir í greinargerð ráðherra.

Aðgerðunum er ætlað að vera áhættumiðaðar, stigvaxandi og beint að tilteknum áhættuflokkuðum bæjum en ekki jafnt að öllum bæjum í viðkomandi varnarhólfi. Sjö ára tímaviðmið er tekið upp í stað 20 ára og er fyrirmyndin sótt í ESB-reglur um riðuveiki sem varða viðskipti með fé á milli landa, auk þess sem sjö ár eru tvöfaldur meðalmeðgöngutími riðuveikismits.

Flokkun á riðubæjum

Gerir landsáætlunin ráð fyrir flokkun á riðubæjum, áhættubæjum og öðrum bæjum í áhættuhólfi auk allra bæja landsins. Sett eru tímasett ræktunarmarkmið fyrir hvern flokk. Öllum sauðfjáreigendum verður gert skylt að rækta gegn riðuveiki í samræmi við stefnur og markmið sem sett eru í landsáætluninni. Miðað er við að ræktunarmarkmiðum verði náð fram með jákvæðum hætti; stuðningi, hvatningu og viðurkenningum.

Þá er gert ráð fyrir að bætur taki mið af framgangi ræktunar miðað við ræktunarmarkmið, þannig að þeir bændur sem ekki fylgi áætluninni geti glatað rétti til bóta að hluta eða öllu leyti, sem ráðherra segir að sé í samræmi við þá almennu reglu að fólki beri að takmarka tjón sitt.