Svíþjóð Katla Tryggvadóttir skoraði tvö mörk gegn Örebro í gær.
Svíþjóð Katla Tryggvadóttir skoraði tvö mörk gegn Örebro í gær. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hin 19 ára gamla Katla Tryggvadóttir fer vel af stað í atvinnumennsku hjá Kristianstad í sænska fótboltanum. Hún skoraði tvö mörk í gær þegar Kristianstad vann Örebro á útivelli, 4:2, og hefur gert fjögur mörk í fyrstu fimm leikjum liðsins í úrvalsdeildinni

Hin 19 ára gamla Katla Tryggvadóttir fer vel af stað í atvinnumennsku hjá Kristianstad í sænska fótboltanum. Hún skoraði tvö mörk í gær þegar Kristianstad vann Örebro á útivelli, 4:2, og hefur gert fjögur mörk í fyrstu fimm leikjum liðsins í úrvalsdeildinni. Hlín Eiríksdóttir var með stoðsendingu í leiknum og átti líka stóran þátt í fyrra marki Kötlu. Kristianstad hefur unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum og er í fjórða sæti deildarinnar.