Boginn Þórsarar fagna marki í lokin gegn Aftureldingu í gær.
Boginn Þórsarar fagna marki í lokin gegn Aftureldingu í gær. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Þór vann ævintýralegan sigur á Aftureldingu, 4:2, í 1. deild karla í fótbolta í Boganum á Akureyri í gær eftir að hafa lent 2:0 undir í byrjun. Rafael Victor og Sigfús Fannar Gunnarsson skoruðu tvö síðari mörk Þórs í uppbótartíma eftir að tveir leikmenn Aftureldingar höfðu verið reknir af velli

Þór vann ævintýralegan sigur á Aftureldingu, 4:2, í 1. deild karla í fótbolta í Boganum á Akureyri í gær eftir að hafa lent 2:0 undir í byrjun. Rafael Victor og Sigfús Fannar Gunnarsson skoruðu tvö síðari mörk Þórs í uppbótartíma eftir að tveir leikmenn Aftureldingar höfðu verið reknir af velli. Birkir Heimisson og Egill Orri Arnarsson skoruðu hin mörkin. Njarðvík vann Dalvík/Reyni, 3:0, þar sem Oumar Diouck skoraði tvö og Joao Ananias eitt.