Skólastjóri Eysteinn Þór segir þá skóla sem hreppi starfsfólk<br class="x-atex-highlight-2" /> Grunnskólans í Grindavík vera heppna með nýja starfskraftinn.
Skólastjóri Eysteinn Þór segir þá skóla sem hreppi starfsfólk
Grunnskólans í Grindavík vera heppna með nýja starfskraftinn. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Hljóðið er þannig séð þungt en þetta er kannski ekki eitthvað sem kemur á óvart,“ segir Eysteinn Þór Kristinsson, skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur, í samtali við Morgunblaðið. Bæjarstjórn Grindavíkur tilkynnti fyrr í vikunni að 149…

Iðunn Andrésdóttir

idunn@mbl.is

„Hljóðið er þannig séð þungt en þetta er kannski ekki eitthvað sem kemur á óvart,“ segir Eysteinn Þór Kristinsson, skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur, í samtali við Morgunblaðið.

Bæjarstjórn Grindavíkur tilkynnti fyrr í vikunni að 149 manns yrði sagt upp störfum hjá bæjarfélaginu frá og með 1. júní, vegna gjörbreyttra aðstæðna í Grindavík.

Ekki er enn vitað hverjir það eru sem missa vinnuna en þegar liggur fyrir að ekkert skólastarf verður í bæjarfélaginu og því hægt að leiða líkur að því að einhverjar uppsagnanna taki til skólastarfsmanna.

Kveðst Eysteinn vongóður um að einhverjir skólastarfsmenn Grindavíkur haldi störfum sínum til að hjálpa til við aðlögun grindvískra barna í nýjum skólum.

„Við sjáum fram á að þurfa að hafa einhver augu og eyru á okkar nemendum þegar þeir dreifast á skóla vítt um landið. Það þurfa einhverjir að vera til að aðstoða þau við að aðlagast nýjum aðstæðum.“

Spurður um líðan starfsfólks segist Eysteinn ekki hafa orðið var við ergelsi meðal starfsfólks eða reiði í garð Grindavíkurbæjar.

„það er aðallega bara söknuður eftir frábærum vinnustað. Við erum tæplega 100 manns sem skiptumst núna út um allt. Það eru kannski þær tilfinningar sem eru erfiðastar,“ segir Eysteinn.

Hann viti þó til þess að starfsfólk hefði viljað vita af uppsögnum fyrr, þar sem ákveðin óvissa hafi ríkt á tímabili. Því sé það eflaust léttir að einhverju leyti að málin fari nú brátt að skýrast til þess að starfsfólk geti farið að leita á önnur mið.

Segir hann margt starfsfólk þegar hafa verið byrjað að leita sér að nýrri vinnu og að stór hluti kennara sé jafnvel kominn með vinnu annars staðar.

„Þetta er eftirsóttur starfskraftur, mikill fjársjóður þessi mannauður sem var á staðnum. Þannig að já, hann hefur verið eftirsóttur og fólk jafnvel haft úr fleiri en einum og fleiri en tveimur skólum að velja,“ segir Eysteinn og bætir við að þeir sem hreppi starfsfólk Grunnskólans í Grindavík geti prísað sig sæla.