Keflavík Hilmar Pétursson mun leika undir stjórn föður síns.
Keflavík Hilmar Pétursson mun leika undir stjórn föður síns. — Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Hilmar Pétursson, landsliðsmaður í körfuknattleik, mun ganga til liðs við Keflavík í sumar. Hilmar kemur frá Münster í Þýskalandi þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár en hann skrifaði undir tveggja ára samning

Hilmar Pétursson, landsliðsmaður í körfuknattleik, mun ganga til liðs við Keflavík í sumar. Hilmar kemur frá Münster í Þýskalandi þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár en hann skrifaði undir tveggja ára samning. Hann spilaði með Breiðabliki áður en hann fór utan en hann hefur einnig leikið með Keflavík og Haukum á ferlinum. Hjá Keflavík leikur Hilmar á ný undir stjórn föður síns, Péturs Ingvarssonar, og við hlið bróður síns, Sigurðar Péturssonar.