Gjaldþrot Stuttu eftir þátt Kveiks um starfsemi Brúneggja urðu Brúnegg gjaldþrota. Núna ber MAST skaðabótaábyrgð gagnvart Bala og Geysi.
Gjaldþrot Stuttu eftir þátt Kveiks um starfsemi Brúneggja urðu Brúnegg gjaldþrota. Núna ber MAST skaðabótaábyrgð gagnvart Bala og Geysi. — Morgunblaðið/Eggert
Landsréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms frá árinu 2022 um sýknu Ríkisútvarpsins af dómkröfum Bala ehf. og Geysis-Fjárfestingarfélags ehf. (Geysir hér eftir) í svokölluðu Brúneggjamáli. Landsréttur hnekkti hins vegar dómi héraðsdóms um sýknu…

Hermann Nökkvi Gunnarsson

hng@mbl.is

Landsréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms frá árinu 2022 um sýknu Ríkisútvarpsins af dómkröfum Bala ehf. og Geysis-Fjárfestingarfélags ehf. (Geysir hér eftir) í svokölluðu Brúneggjamáli.

Landsréttur hnekkti hins vegar dómi héraðsdóms um sýknu Matvælastofnunar (MAST) og ber stofnunin nú skaðabótaábyrgð.

Þetta kom fram við dómsuppsögu í Landsrétti í gær.

Þorvaldur Hauksson hjá embætti ríkislögmanns segir í samtali við Morgunblaðið að Matvælastofnun muni fara yfir dóminn á næstu vikum og nota þann tíma til að íhuga hvort reyna eigi að áfrýja málinu.

„Það sem stendur núna til er að Matvælastofnun hefur fjórar vikur til að ákveða hvort það verði óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar,“ segir Þorvaldur og bætir við:

„Núna verður þessi tími nýttur til að skoða dóminn og ákveða hvort óskað verði eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja málinu þangað.“

Vildu fá skaðabætur

Bali og Geysir höfðuðu mál á hendur RÚV og MAST fyrri hluta árs 2021 vegna umfjöllunar Kveiks um starfsemi Brúneggja í lok árs 2016. Stuttu eftir þáttinn urðu Brúnegg gjaldþrota. Stefnendur töldu að RÚV og starfsmenn MAST hefðu farið með rangfærslur og með stefnu sinni vildu þeir að skaðabótaábyrgð RÚV og MAST yrði viðurkennd.

„Viðurkennt er að stefnda Matvælastofnun beri skaðabótaábyrgð gagnvart áfrýjendum, hvorum um sig, vegna tjóns sem Brúnegg ehf. varð fyrir vegna afhendingar stofnunarinnar á gögnum varðandi starfsemi einkahlutafélagsins til stefnda Ríkisútvarpsins ohf.,“ segir meðal annars í niðurstöðu Landsréttar.

Þá ber Matvælastofnun skaðabótaábyrgð vegna ummæla tveggja starfsmanna stofnunarinnar í þætti Kastljóss 28. nóvember 2016.

Allur málskostnaður Bala ehf., Geysis og Ríkisútvarpsins fyrir héraði er felldur niður. MAST er gert að greiða Bala ehf. og Geysi fjórar milljónir króna sitt í hvoru lagi í málskostnað fyrir héraði og fyrir Landsrétti. Geysir er í eigu Kristins Gylfa Jónssonar, en Bali í eigu Björns Jónssonar, en þeir bræður eru fyrrverandi eigendur Brúneggja.

Viðar Lúðvíksson, lögmaður Bala og Geysis, segir í samtali við Morgunblaðið að niðurstaðan hvað varðar Matvælastofnun hafi verið að mestu eins og lagt var upp með í málatilbúnaði umbjóðenda hans.

„En það eru kannski ákveðin vonbrigði hjá mínum umbjóðendum hvað varðar niðurstöðu Landsréttar varðandi Ríkisútvarpið,“ segir Viðar.

Hann segir nokkra möguleika vera uppi í kjölfar dómsins, meðal annars þann að MAST greiði umbjóðendum hans skaðabætur.

MAST gæti hins vegar freistað þess að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar, en þá væri viðbúið að umbjóðendur Viðars óskuðu eftir áfrýjunarleyfi til að áfrýja dómnum á hendur RÚV. Um framhald málsins sé hins vegar of snemmt að segja á þessu stigi.