Lilly Collins leikur Emily.
Lilly Collins leikur Emily. — IMBD/Stéphanie Branchu
Gaman Netflix tilkynnti á dögunum að vinsælu sjónvarpsþættirnir Emily in Paris myndu snúa aftur, nú í fjórðu seríu. Fyrstu þættina verður hægt að horfa á 15. ágúst 2024. Þessar fréttir eru mikið fagnaðarefni fyrir marga áhorfendur Netflix, þar sem…

Gaman Netflix tilkynnti á dögunum að vinsælu sjónvarpsþættirnir Emily in Paris myndu snúa aftur, nú í fjórðu seríu. Fyrstu þættina verður hægt að horfa á 15. ágúst 2024. Þessar fréttir eru mikið fagnaðarefni fyrir marga áhorfendur Netflix, þar sem síðustu þrjár þáttaraðir hafa slegið í gegn og voru í fyrsta sæti yfir vinsælustu þáttaraðir Netflix. Lily Collins, aðalleikkonan, var beðin að tjá sig um nýju þáttaröðina á kynningarviðburði Netflix í júní 2023. Collins sagði þá: „Þótt hjarta Emily muni ávallt tilheyra París, þá mun líf hennar breytast til muna.“ Mun Emily eyða tíma sínum í annarri stórborg þetta árið?