Dragdrottningin Bianca Del Rio, úr RuPaul’s Drag Race, kemur fram í Eldborg Hörpu laugardaginn 12. október. Almenn sala hefst á morgun, þriðjudag, kl. 10, en póstlistaforsala Senu Live hefst í dag kl
Dragdrottningin Bianca Del Rio, úr RuPaul’s Drag Race, kemur fram í Eldborg Hörpu laugardaginn 12. október. Almenn sala hefst á morgun, þriðjudag, kl. 10, en póstlistaforsala Senu Live hefst í dag kl. 10. Viðburðurinn er hluti af ferðlagi hennar, Dead Inside World Comedy Tour. „Bianca Del Rio stígur upp úr gröfinni til að minna okkur á að hún er ennþá dauð að innan. Ef þú elskar beinskeyttan húmor og glimmerbúninga og móðgast ekki auðveldlega, þá er Dead Inside sýningin fyrir þig!“ segir um gamansýninguna í tilkynningu.