Bergur Þór Ingólfsson
Bergur Þór Ingólfsson
Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar. Bergur Þór útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1995 og hefur verið fastráðinn við Borgarleikhúsið frá 2000

Bergur Þór Ingólfsson er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar. Bergur Þór útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1995 og hefur verið fastráðinn við Borgarleikhúsið frá 2000. Þar hefur hann leikið fjölda hlutverka og leikstýrt sýningum á borð við Mary Poppins, Deleríum búbónis, Billy Elliot og Matthildi.

„Það er mikill heiður og viðurkenning að vera treyst fyrir svo merkri og mikilvægri menningarstofnun sem LA er. Ég tek við leikhúsi í toppstandi eftir Mörtu Nordal, hef átt í frábærum samskiptum við verðandi samstarfsfólk mitt hjá MAk og finn til mikillar eftirvæntingar fyrir því sem fram undan er. Akureyri er yndislegur, fallegur og spennandi bær. Ég hlakka til að flytja norður og setja upp skemmtilegar, áríðandi og lifandi leiksýningar,“ er haft eftir Bergi í tilkynningu. Eva Hrund Einarsdóttir framkvæmdastjóri MAk segir mikinn feng fyrir félagið að fá Berg til starfa. „Hann kemur með mikla þekkingu og reynslu af starfi leikhúsa og hefur verið afar farsæll í sínum störfum. Ég hlakka mikið til samstarfsins.“