Dúett Marína Ósk og Ragnar Ólafsson.
Dúett Marína Ósk og Ragnar Ólafsson.
Marína Ósk og Ragnar Ólafsson halda tónleika í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 21. „Tónskáldin fóru nýlega í tónleikaferðalag hringinn og léku á alls 12 tónleikastöðum við hlýlegar undirtektir

Marína Ósk og Ragnar Ólafsson halda tónleika í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 21. „Tónskáldin fóru nýlega í tónleikaferðalag hringinn og léku á alls 12 tónleikastöðum við hlýlegar undirtektir. Nú er komið að Vestmannaeyjum og verður það lokahnykkurinn á ferðalaginu. Þegar Marína og Ragnar leika saman tónlist blandast heimar djass, rokks og þjóðlagatónlistar. Útkoman er töfrandi og hjartahlý músík sem lætur fáa ósnortna,“ segir í viðburðarkynningu. Sérstakir gestir á tónleikunum verða meðlimir í Kirkjukór Landakirkju. Miðar fást á midix.