„Hreinskilningur“ er ekki til, og því ekki hægt að játa neitt „hreinskilningslega“, en það er hreinskilni og skal notað til að segja hreinskilnislega frá þegar maður treystir sér til

„Hreinskilningur“ er ekki til, og því ekki hægt að játa neitt „hreinskilningslega“, en það er hreinskilni og skal notað til að segja hreinskilnislega frá þegar maður treystir sér til. S-ið á eftir hreinskilni- er tengistafur, rétt eins og í leikfimis-tími og athyglis-verður (en hreinskilni ein og sér er eins í öllum föllum).