Meistarar Denver Nuggets eru búnir að snúa einvíginu við Minnesota Timberwolves við í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í körfubolta. Eftir tvö töp á heimavelli í byrjun einvígisins komst Denver í 3:2 með sigri á heimavelli í fyrrinótt
Meistarar Denver Nuggets eru búnir að snúa einvíginu við Minnesota Timberwolves við í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í körfubolta. Eftir tvö töp á heimavelli í byrjun einvígisins komst Denver í 3:2 með sigri á heimavelli í fyrrinótt. Nikola Jokic var í miklum ham en hann skoraði 40 stig, gaf 13 stoðsendingar og tók sjö fráköst fyrir Denver. Sjötti leikur liðanna fer fram í Minneapolis í nótt og þar getur Denver tryggt sér sigur í einvíginu.