Rúnar Ingi Erlingsson verður næsti þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í körfuknattleik, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, en Benedikt Guðmundsson tilkynnti í fyrrakvöld að hann væri hættur með liðið. Rúnar hefur frá 2020 þjálfað kvennalið Njarðvíkur sem …
Rúnar Ingi Erlingsson verður næsti þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í körfuknattleik, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, en Benedikt Guðmundsson tilkynnti í fyrrakvöld að hann væri hættur með liðið. Rúnar hefur frá 2020 þjálfað kvennalið Njarðvíkur sem leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn Keflavík og fyrsti leikur liðanna fer fram í kvöld. Njarðvíkingar munu ekki staðfesta þessa tilfærslu Rúnars fyrr en einvíginu er lokið.