Danmörk Jóhannes Karl Guðjónsson er farinn til Kaupmannahafnar.
Danmörk Jóhannes Karl Guðjónsson er farinn til Kaupmannahafnar. — Ljósmynd/Szilvia Micheller
Jóhannes Karl Guðjónsson var í gær ráðinn þjálfari danska C-deildarfélagsins AB frá Kaupmannahöfn til næstu þriggja ára. Hann lét um leið af störfum sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Íslands. AB er eitt af frægustu félögum Danmerkur, varð níu…

Jóhannes Karl Guðjónsson var í gær ráðinn þjálfari danska C-deildarfélagsins AB frá Kaupmannahöfn til næstu þriggja ára. Hann lét um leið af störfum sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Íslands. AB er eitt af frægustu félögum Danmerkur, varð níu sinnum danskur meistari á síðustu öld og bikarmeistari 1999, en hefur ekki leikið í úrvalsdeildinni í 20 ár og verið í C-deildinni frá 2017. Ágúst Eðvald Hlynsson er á meðal leikmanna liðsins.