Skógrækt F.v. Ágúst Sigurðsson hjá Landi og skógi, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir ráðherra og Jónatan Garðarsson formaður Skógræktarfélags Íslands.
Skógrækt F.v. Ágúst Sigurðsson hjá Landi og skógi, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir ráðherra og Jónatan Garðarsson formaður Skógræktarfélags Íslands.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, og Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, undirrituðu samninga í gær um framkvæmd landgræðsluskóga til ársloka 2029

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, og Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, undirrituðu samninga í gær um framkvæmd landgræðsluskóga til ársloka 2029.

Landgræðsluskógar eru samstarfsverkefni ríkisins og skógræktarfélaganna. Að græða lítt og ógróið land með fjölbreyttum skógum er inntak skóga þessara sem eru til útivistar. Með þeim er kolefnisbúskapur landsins bættur, vistkerfi endurheimt og líffræðileg fjölbreytni efld. Verkefnið hófst árið 1990 og var hleypt af stokkunum í tilefni 60 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands á því herrans ári.

Undir merkjum landgræðsluskóga hefur verið unnið að ræktun skóga á um 150 svæðum um allt land og hafa alls verið gróðursettar frá upphafi liðlega 24,2 milljónir plantna á um 770 ferkílómetra svæði. Slíkt er gert samkvæmt leiðbeiningum og eftirliti sem Land og skógur hefur með höndum.

Langflest ræktunarsvæðin eru á landi í eigu sveitarfélaga, ríkis eða félaganna sjálfra. sbs@mbl.is