Leikur Sigurvegari keppninnar fær mynd sína á forsíðu sjómannadagsblaðs 200 mílna og 50 þúsund króna gjafabréf á Sjávargrillið.
Leikur Sigurvegari keppninnar fær mynd sína á forsíðu sjómannadagsblaðs 200 mílna og 50 þúsund króna gjafabréf á Sjávargrillið.
Morgunblaðið og 200 mílur hafa ákveðið að leita til lesenda til að finna forsíðu sjómannadagsblaðs 200 mílna sem fylgir Morgunblaðinu 1. júní næstkomandi og efnir því til ljósmyndasamkeppni. Sigurvegarinn fær ekki aðeins mynd sína birta á forsíðu…

Morgunblaðið og 200 mílur hafa ákveðið að leita til lesenda til að finna forsíðu sjómannadagsblaðs 200 mílna sem fylgir Morgunblaðinu 1. júní næstkomandi og efnir því til ljósmyndasamkeppni.

Sigurvegarinn fær ekki aðeins mynd sína birta á forsíðu sjómannadagsblaðsins heldur verða einnig veitt vegleg verðlaun fyrir sigurmyndina sem og þær myndir sem lenda í öðru og þriðja sæti. Eru fyrstu verðlaun 50.000 króna gjafabréf á Sjávargrillið, önnur verðlaun 30.000 króna gjafabréf á Sjávargrillið og þriðju verðlaun 20.000 króna gjafabréf á Sjávargrillið.

Má senda fleiri myndir

Leitað er að fallegum, skemmtilegum og áhugaverðum ljósmyndum, af, við eða á sjó, og er frestur til að senda inn mynd í keppnina til miðnættis 27. maí. Einungis er tekið við myndum í gegnum innsendisíðu á vef mbl.is sem einnig er hægt að nálgast með QR-kóðanum með þessari frétt.

Hver þátttakandi má senda inn eins margar myndir og honum hugnast. Engu skiptir hvenær mynd er tekin og heimilt er að senda inn skannaðar myndir. Eftir 27. maí fer dómnefnd yfir allar innsendar myndir og velur verðlaunamyndir. Birtar verða niðurstöður og samantekt í sjómannadagsblaðinu.

Með þátttöku staðfestir viðkomandi að hann hafi óskoraðan höfundarrétt á innsendu myndefni. Ekki er heimilt að taka þátt með mynd sem búin er til með aðstoð gervigreindar.