Ferðamannastaður Ferðamenn skoða hinn ryðgaða Garðar BA 64 sem er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á sunnanverðum Vestfjörðum.
Ferðamannastaður Ferðamenn skoða hinn ryðgaða Garðar BA 64 sem er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á sunnanverðum Vestfjörðum. — Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson.
Valgerður Laufey Guðmundsdóttir vally@mbl.is Ferðamannasumarið 2024 er hafið og undanfarin ár hefur verið mikil aðsókn að Garðari BA 64, elsta stálskipi Íslands. Íbúar hafa lýst áhyggjum af ástandi skipsins eins og það er í dag. Það sér mikið á því og það er orðið mjög illa farið. Skipið er gegnumryðgað og götótt. Áhyggjur íbúa snúa að því að það verði slys og að slysahætta hafi aukist verulega vegna ástandsins skipsins.

Valgerður Laufey Guðmundsdóttir

vally@mbl.is

Ferðamannasumarið 2024 er hafið og undanfarin ár hefur verið mikil aðsókn að Garðari BA 64, elsta stálskipi Íslands. Íbúar hafa lýst áhyggjum af ástandi skipsins eins og það er í dag. Það sér mikið á því og það er orðið mjög illa farið. Skipið er gegnumryðgað og götótt. Áhyggjur íbúa snúa að því að það verði slys og að slysahætta hafi aukist verulega vegna ástandsins skipsins.

Garðar hefur staðið í fjörunni við Skápadal í Patreksfirði síðan 1981. Á þessum fjörutíu og þremur árum sem Garðar hefur staðið í fjörunni hefur skipið ryðgað mikið.

Það virðist ekki skipta ferðamenn neinu máli og er Garðar einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á Vestfjörðum. Að sögn íbúa á svæðinu fer mikill straumur ferðamanna að Garðari daglega, auk íbúa í kring sem vilja njóta náttúrunnar.

Mikill straumur ferðamanna skoðar Garðar á hverjum degi og þeir eiga það til að klifra upp í skipið, þrátt fyrir að það sé skilti á svæðinu sem gefur til kynna að það sé bannað. Einn íbúa, sem Morgunblaðið ræddi við, segir að tími sé til kominn að ganga í úrbætur á Garðari áður en það verði slys.

Söguleg menningarverðmæti eða slysagildra?

Íbúarnir hafa lýst yfir áhyggjum af ástandi skipsins eins og það er í dag. Það sér mikið á því og er orðið mjög illa farið. Skipið er ryðgað í gegn og götótt. Áhyggjur íbúa snúa að því að það verði slys og að slysahætta hafi aukist verulega vegna ástandsins á skipinu.

Í ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða árið 2023 undir fyrirsögninni „söguleg menningarverðmæti eða slysagildra“ segir að Garðar sé nú gegnumryðgaður og hættulegur þeim sem sækja hann heim. Skipið var smíðað í Noregi árið 1912 fyrir sel- og hvalveiðar. Það kom upprunalega til Íslands í seinni heimsstyrjöldinni en árið 1974 keypti Patrekur hf. skipið, en Jón Magnússon aðaleigandi félagsins var skipstjóri Garðars. Á vetrarvertíðum þegar Jón var skipstjóri var Garðar oft aflahæsti netbáturinn á Vestfjörðum. Árið 1981 varð Garðar ónothæfur og honum siglt upp í fjöruna við Skápadal í desember, þar sem hann hefur staðið síðan.