Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur í leikstjórn Björns Thors og sviðsetningu Þjóðleikhússins, hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar, Íslensku sviðslistaverðlaunanna, í ár eða átta talsins. Næstflestar tilnefningar, eða sex talsins, hlýtur Ást Fedru eftir Söruh Kane í leikstjórn Kolfinnu Nikulásdóttur. Því næst kemur Með Guð í vasanum eftir Maríu Reyndal í leikstjórn höfundar með fimm tilnefningar. Gríman verður afhent 29. maí og sýnd beint á RÚV. Í ár var 61 sviðsverk skráð af leikhúsum og sviðslistahópum í Grímuna; fimm óperur, níu dansverk, eitt útvarpsleikverk og 33 sviðsverk ásamt 13 barnaleikhúsverkum, þar af tvær óperur og eitt dansverk. Níu manna valnefnd hefur fjallað um allar sýningarnar og valið fimm einstaklinga, teymi eða verk í hverjum verðlaunaflokki í forvali Grímunnar er hljóta tilnefningu. Tilnefnt er í 18 verðlaunaflokkum, en auk þess eru heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands veitt einstaklingi sem þykir hafa skilað framúrskarandi ævistarfi í þágu sviðslista á Íslandi.
Sýning ársins
• Félagsskapur með sjálfum mér
• Fúsi – aldur og fyrri störf
• Molta
• Saknaðarilmur
• Stroke
Leikrit ársins
• Félagsskapur með sjálfum mér eftir Gunnar Smára Jóhannesson
• Verkið eftir Jón Gnarr
• Með Guð í vasanum eftir Maríu Reyndal
• Lúna eftir Tyrfing Tyrfingsson
• Saknaðarilmur eftir Unni Ösp Stefánsdóttur, leikverk byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur
Leikstjóri ársins
• Agnar Jón Egilsson – Fúsi – aldur og fyrri störf
• Björn Thors – Saknaðarilmur
• María Reyndal – Með Guð í vasanum
• Stefán Jónsson – Lúna
• Tómas Helgi Baldursson – Félagsskapur með sjálfum mér
Leikkona í aðalhlutverki
• Ebba Katrín Finnsdóttir – Orð gegn orði
• Ilmur Kristjánsdóttir – Ekki málið
• Katla Margrét Þorgeirsdóttir – Með Guð í vasanum
• Unnur Ösp Stefánsdóttir – Saknaðarilmur
• Virginia Gillard – Stroke
Leikari í aðalhlutverki
• Björn Thors – Ekki málið
• Gunnar Smári Jóhannesson – Félagsskapur með sjálfum mér
• Hilmir Snær Guðnason – Lúna
• Kjartan Darri Kristjánsson – Frost
• Sigurður Þór Óskarsson – Deleríum búbónis
Leikkona í aukahlutverki
• Kristbjörg Kjeld – Með Guð í vasanum
• Sólveig Arnarsdóttir – Með Guð í vasanum
• Vigdís Halla Birgisdóttir – Hollvættir á heiði
• Vigdís Hrefna Pálsdóttir – Mútta Courage og börnin
• Þórunn Arna Kristjánsdóttir – X
Leikari í aukahlutverki
• Agnar Jón Egilsson – Fúsi – aldur og fyrri störf
• Atli Rafn Sigurðarson – Mútta Courage og börnin
• Guðjón Davíð Karlsson – Frost
• Sverrir Þór Sverrisson – And Björk, of course …
• Þröstur Leó Gunnarsson – Ást Fedru
Dansari ársins
• Elín Signý W. Ragnarsdóttir –
The Simple Act of Letting go
• Emilía Benedikta Gísladóttir –
The Simple Act of Letting go
• Erna Gunnarsdóttir – The Simple Act of Letting go
• Inga Maren Rúnarsdóttir – Árstíðirnar
• Ólöf Ingólfsdóttir – Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók
Söngvari ársins
• Áslákur Ingvarsson – Póst-Jón
• Eggert Reginn Kjartansson – Ævintýraóperan Hans og Gréta
• Heiða Árnadóttir – Mörsugur
• Hildur Vala Baldursdóttir – Frost
• Rán Ragnarsdóttir – Eitruð lítil pilla
Leikmynd ársins
• Filippía I. Elísdóttir – Ást Fedru
• Eva Signý Berger – Fíasól gefst aldrei upp
• Guðný Hrund Sigurðardóttir, Hákon Pálsson og Rósa Ómarsdóttir – Molta
• Elín Hansdóttir – Saknaðarilmur
• Júlíanna Lára Steingrímsdóttir – Vaðlaheiðargöng
Búningar ársins
• Brynja Björnsdóttir – And Björk, of course …
• Filippía I. Elísdóttir – Ást Fedru
• Stefanía Adolfsdóttir – Deleríum búbónis
• Júlíanna Steingrímsdóttir – Fíasól gefst aldrei upp
• Filippía I. Elísdóttir – Saknaðarilmur
Lýsing ársins
• Katerina Blahutova – Árstíðirnar
• Ásta Jónína Arnardóttir – Ást Fedru
• Ásta Jónína Arnardóttir – Edda
• Ólafur Ágúst Stefánsson – Piparfólkið
• Björn Bergsteinn Guðmundsson – Saknaðarilmur
Tónlist ársins
• Egill Andrason og Salka
Valsdóttir – Edda
• Nicolai Johansen – Molta
• Valgeir Sigurðsson og Helgi Hrafn Jónsson – Mútta Courage og börnin
• Ásbjörg Jónsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir – Mörsugur
• Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson – Saknaðarilmur
Hljóðmynd ársins
• Kristján Sigmundur Einarsson – Ást Fedru
• Ronja Jóhannsdóttir – Kannibalen
• Ísidór Jökull Bjarnason – Lúna
• Friðrik Margrétar- Guðmundsson – Sund
• Þorbjörn Steingrímsson – X
Danshöfundur ársins
• Snædís Lilja Ingadóttir og Valgerður
Rúnarsdóttir – Árstíðirnar
• Bára Sigfúsdóttir og Orfee Schuijt – Fabulation
• Rósa Ómarsdóttir – Molta
• Ólöf Ingólfsdóttir – Sjö ljóð úr óskrifaðri ljóðabók
• Tom Weinberger – The Simple Act of Letting go
Dans- og sviðshreyfingar
• Seiðr og Ernesto Camilo Aldazábal Valdés – Ást Fedru
• Unnur Elísabet Gunnarsdóttir – Deleríum búbónis
• Valgerður Rúnarsdóttir – Fíasól gefst aldrei upp
• Aðalbjörg Árnadóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir – Piparfólkið
• Andrean Sigurgeirsson í samstarfi við Birni Jón Sigurðsson, Ernu Guðrúnu Fritzdóttur, Eygló Hilmarsdóttur, Kjartan Darra Kristjánsson og Þóreyju Birgisdóttur – Sund
Barnasýning ársins 2024
• Fíasól gefst aldrei upp
• Frost
• Hollvættir á heiði
• Kan(l)ínudans
• Ævintýraóperan Hans og Gréta
Hvatningarverðlaun valnefndar 2024 fyrir framúrskarandi nýbreytni í sviðslistum (hét áður Sproti ársins)
• Fúsi – aldur og fyrri störf
• House of Revolution
• Stefan Sand tónskáld og kórstjóri
• Stroke
• Þórunn Guðmundsdóttir tónskáld