Haukar Lore Devos fer til Ástralíu og þaðan til Hauka í haust.
Haukar Lore Devos fer til Ástralíu og þaðan til Hauka í haust. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Belgíska körfuknattleikskonan Lore Devos, sem var í stóru hlutverki hjá nýliðum Þórs á Akureyri í úrvalsdeild kvenna í vetur, hefur samið við Hauka um að leika með þeim á næsta timabili. Lore, sem er 25 ára gömul og leikur sem framherji, skoraði…

Belgíska körfuknattleikskonan Lore Devos, sem var í stóru hlutverki hjá nýliðum Þórs á Akureyri í úrvalsdeild kvenna í vetur, hefur samið við Hauka um að leika með þeim á næsta timabili. Lore, sem er 25 ára gömul og leikur sem framherji, skoraði 21,4 stig að meðaltali í leik fyrir Þór í vetur og tók níu fráköst að meðaltali í leik. Hún leikur með Launceston Tornadoes í Ástralíu í sumar en kemur til liðs við Hauka þegar Íslandsmótið hefst.