— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Valur varð í gærkvöld Íslandsmeistari kvenna í handknattleik með því að sigra Hauka á Hlíðarenda, 28:25, í þriðja úrslitaleik liðanna. Valskonur urðu þar með meistarar annað árið í röð og í nítjánda skipti alls en þær höfðu umtalsverða yfirburði á…

Valur varð í gærkvöld Íslandsmeistari kvenna í handknattleik með því að sigra Hauka á Hlíðarenda, 28:25, í þriðja úrslitaleik liðanna. Valskonur urðu þar með meistarar annað árið í röð og í nítjánda skipti alls en þær höfðu umtalsverða yfirburði á tímabilinu, unnu 26 leiki af 27 á Íslandsmótinu og urðu bikarmeistarar að auki. Íslandsbikarinn fór á loft í leikslok og mikil gleði ríkti hjá leikmönnum og stuðningsfólki Vals. » 27