Bashar Murad
Bashar Murad
Bashar Murad heldur tvenna tónleika í Iðnó í dag, 18. maí, kl. 17.30 og kl. 20.20. Fagnar hann með því nýrri smáskífu sinni, „Stone“, en hún er hluti af væntanlegri plötu sem hann vinnur með Einari Stef

Bashar Murad heldur tvenna tónleika í Iðnó í dag, 18. maí, kl. 17.30 og kl. 20.20. Fagnar hann með því nýrri smáskífu sinni, „Stone“, en hún er hluti af væntanlegri plötu sem hann vinnur með Einari Stef. Murad þekkja Íslendingar úr Söngvakeppni RÚV en hann tók þátt í henni fyrr á árinu og lenti í öðru sæti með lagið „Wild West“. Nýja lagið er í þjóðlagapoppstíl eins og „Wild West“ en textinn fjallar um baráttu Palestínufólks en um leið vonina um betra líf, segir í tilkynningu.