Flest besta frjálsíþróttafólk landsins tekur þátt í Norðurlandamótinu sem fer fram í Malmö í Svíþjóð í dag og á morgun. Mörg þeirra eru að berjast um að komast á Ólympíuleikana í sumar. Meðal keppenda eru Baldvin Þór Magnússon, Erna Sóley…
Flest besta frjálsíþróttafólk landsins tekur þátt í Norðurlandamótinu sem fer fram í Malmö í Svíþjóð í dag og á morgun. Mörg þeirra eru að berjast um að komast á Ólympíuleikana í sumar. Meðal keppenda eru Baldvin Þór Magnússon, Erna Sóley Gunnarsdóttir, Guðni Valur Guðnason, Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Hilmar Örn Jónsson, Sindri Hrafn Guðmundsson, Kolbeinn Höður Gunnarsson, Dagbjartur Daði Jónsson og Aníta Hinriksdóttir.