Ein mikilvægasta kvikmyndahátíð heims, sú sem haldin er árlega í Cannes í Frakklandi, hófst í vikunni og frægðarmenni sem og minna þekkt fólk í faginu baðar sig nú í sólinni syðra. Að vanda frumsýna margir dáðustu leikstjórar heims sínar nýjustu myndir og keppa um Gullpálmann eftirsótta. Talið er að allt að 40 þúsund manns sæki hátíðina á ári hverju.