Förðun Gypsy Rose Blanchard hefur verið áberandi síðan hún losnaði úr fangelsi síðastliðinn desember, en þá hafði hún setið inni í átta ár fyrir að myrða ofbeldisfulla móður sína. Hún hefur mætt á ýmsa viðburði og verið í sviðsljósinu, meðal annars…
Förðun Gypsy Rose Blanchard hefur verið áberandi síðan hún losnaði úr fangelsi síðastliðinn desember, en þá hafði hún setið inni í átta ár fyrir að myrða ofbeldisfulla móður sína. Hún hefur mætt á ýmsa viðburði og verið í sviðsljósinu, meðal annars á TikTok-síðu sinni en þar deildi hún nýverið myndböndum þar sem hún sýndi fólki ýmsar aðferðir sem hún notaðist við í fangelsinu. Þá kenndi hún fólki að nota ýmsar nauðsynjavörur og breyta í snyrtivörur og blandaði meðal annars saman tannkremi og bleki til þess að búa til maskara.