KA vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Bestu deild karla í fótbolta er liðið lagði Fylki, 4:2, á heimavelli sínum á Akureyri í gær. Þrátt fyrir sigurinn er KA enn í fallsæti, nú með fimm stig og einu stigi á eftir Vestra og öruggu sæti
KA vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Bestu deild karla í fótbolta er liðið lagði Fylki, 4:2, á heimavelli sínum á Akureyri í gær. Þrátt fyrir sigurinn er KA enn í fallsæti, nú með fimm stig og einu stigi á eftir Vestra og öruggu sæti. Fylkir er á botninum með eitt stig. Víkingur úr Reykjavík er með sex stiga forskot á toppnum eftir 4:1-útisigur á Vestra og KR hafði betur gegn FH á útivelli, 2:1. » 26