Kostnaður vegna viðburða og ráðstefna hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu hækkaði um 10 milljónir á milli ára og nam því rúmum 26 milljónum króna í fyrra. Þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, við…

Anna Rún Frímannsdóttir

annarun@mbl.is

Kostnaður vegna viðburða og ráðstefna hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu hækkaði um 10 milljónir á milli ára og nam því rúmum 26 milljónum króna í fyrra. Þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, við fyrirspurn Berglindar Óskar Guðmundsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins um málið.

Fjármunir skattgreiðenda

Berglind var gestur í Spursmálum síðastliðinn föstudag þar sem þáttarstjórnandinn Stefán Einar Stefánsson spurði hana nánar út í þessa fyrirspurn. „Á síðasta ári til dæmis eyddi mennta- og barnamálaráðuneytið 26 milljónum á einu ári í viðburði og ráðstefnur. Það eru gríðarlega miklir fjármunir skattgreiðenda og auðvitað er eitthvað af þessu eðlilegt og eitthvað sem ráðuneytið var fengið til að sinna og eru bara lögbundin verkefni kannski, en við hljótum samt að geta spurt okkur og eigum að spyrja okkur, er eðlilegt að skattfé sé eytt á þennan máta?“ segir Berglind Ósk.

Fjórir stórir viðburðir

Í skriflegu svari mennta- og barnamálaráðuneytisins til Morgunblaðsins segir að ástæðan fyrir aukningunni sé sú að fjórir stærstu viðburðir ráðuneytisins á kjörtímabilinu hafi allir verið haldnir á árinu 2023. „Allir viðburðirnir voru fjölsóttir með á fimmta hundrað þátttakenda að meðaltali á hverjum viðburði og á þriðja hundrað á netinu. Þeir höfðu það sameiginlega markmið að fá sem flesta að borðinu, bæði á staðinn og á fjarfund fyrir þau sem komust ekki á staðinn, kynna áform og fá fram sem flest sjónarmið inn í vinnu ráðuneytisins við að hrinda í framkvæmd helstu stefnumálum þess í samráði við hagaðila og almenning.“ Segir þar jafnframt að haldinn hafi verið þjóðfundur um skólaþjónustu í mars sem fylgt hafi verið eftir með samráðsfundi í júní. Þá hafi fyrsta Farsældarþingið verið haldið í september og loks hafi ráðstefnan Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum verið haldin í nóvember.

Höf.: Anna Rún Frímannsdóttir