— Morgunblaðið/Brynjólfur Löve
Hátt í 200 manns sóttu forsetafund Morgunblaðsins með Katrínu Jakobsdóttur á Græna hattinum á Akureyri í gærkvöldi. Á fundinum svaraði hún ýmsum krefjandi spurningum frá blaðamönnunum Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni og sköpuðust líflegar umræður

Hátt í 200 manns sóttu forsetafund Morgunblaðsins með Katrínu Jakobsdóttur á Græna hattinum á Akureyri í gærkvöldi. Á fundinum svaraði hún ýmsum krefjandi spurningum frá blaðamönnunum Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni og sköpuðust líflegar umræður. Katrín var spurð um afstöðu sína til Atlantshafsbandalagsins, en hún sagði að hún myndi fylgja utanríkisstefnu samþykktri af Alþingi. Hún sagði einnig að þjóðin ætti að fá að kjósa ef meirihluti Alþingis myndi reyna að taka Ísland úr Atlantshafsbandalaginu.

Katrín sagði það skipta sig máli að varðveita íslenska tungu, menningu og sögu. Stefán spurði hana nánar út í varðveislu íslensku tungunnar og þá hvort hún myndi tala hefðbundna íslensku eða með kynhlutlausu málfari. Katrín sagði að hún myndi gera hvort tveggja, eins og áður.

Hún var spurð um reynslu sína úr stjórnmálum og sagði hún þá reynslu sína vera af hinu góða og geta nýst henni sem forseta Íslands. » 4