Nýr samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags sjúkraþjálfara var kynntur í gær. Samningurinn er til fimm ára en sjúkraþjálfarar hafa verið án samnings við ríkið í fjögur ár. Haft er eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í tilkynningu að með samningnum falli niður aukagjöld sem lögð hafa verið á sjúklinga meðan enginn samningur var í gildi. Umrædd aukagjöld hafa gjarnan numið á bilinu 1.500-3.000 kr. Sjúkraþjálfarar hætta að innheimta þessi aukagjöld frá og með 1. júní.
Samkvæmt upplýsingum Sjúkratrygginga sóttu rúmlega 62 þúsund einstaklingar þjónustu til sjúkraþjálfara á liðnu ári. Árið 2022 leituðu tæplega 56 þúsund manns til sjúkraþjálfara og var því aukningin um 11,3% á milli ára. Það sem af er ári hafa um 42 þúsund manns farið í sjúkraþjálfun sem er 3,9% aukning frá því á sama tíma í fyrra.