Þeir sem eru svo vanafastir að þeir fara oftast á sömu staði í fríinu öðlast reynslu sem þeir nýjungagjörnu missa af. Góðum hótelum getur haldist svo vel á fólki að fastagestir nái að kynnast því og sjá örlítið inn í líf þess

Þeir sem eru svo vanafastir að þeir fara oftast á sömu staði í fríinu öðlast reynslu sem þeir nýjungagjörnu missa af.

Góðum hótelum getur haldist svo vel á fólki að fastagestir nái að kynnast því og sjá örlítið inn í líf þess. Sjá þá sem eru á seinna starfsskeiði og síðan horfnir. Aðrir taka við en jafnvel þeir missa fjaðurmagnið og hárið gránar. Við vitum að launin eru lág og vaktirnar langar.

Nýverið bætast áhyggjur af leiguverði við. Ríku þjóðirnar eiga hægt með að ógna kjörunum og öryggið minnkar. Farandverkafólk hefur fest rætur, eins og rússneska þjónustan Írena sem grét þegar Úkraínustríðið braust út. Nú er hún horfin. Hún átti fólkið sitt beggja vegna. Gamla konan sem rak búðina hér á móti er líka horfin. Fór víst á spítala og dó. Nýtt fólk tók við en samt mynd í sorgarramma baka til fyrir gömlu kúnnana.

Þannig sjáum við gestir úr 5.000 km fjarlægð inn í líf innbyggjaranna, eða höldum það að minnsta kosti.

Sunnlendingur.