Enska knattspyrnusambandið hefur kært Lucas Paquetá, leikmann West Ham og landsliðs Brasilíu, fyrir brot á veðmálareglum sambandsins. Paquetá er sakaður um að hafa fengið viljandi gul spjöld í leikjum liðsins og þannig aðstoðað aðra við að hagnast á veðmálum
Enska knattspyrnusambandið hefur kært Lucas Paquetá, leikmann West Ham og landsliðs Brasilíu, fyrir brot á veðmálareglum sambandsins. Paquetá er sakaður um að hafa fengið viljandi gul spjöld í leikjum liðsins og þannig aðstoðað aðra við að hagnast á veðmálum. Fjögur grunsamleg gul spjöld sem hann hefur fengið í úrvalsdeildinni voru rannsökuð. Paquetá neitar sök en á yfir höfði sér langt bann ef hann verður fundinn sekur.