Verslun Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, ræddi um rekstur verslananna á fundi Kompanís.
Verslun Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, ræddi um rekstur verslananna á fundi Kompanís. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hagkaup mun í næsta mánuði opna netverslun með áfengi. Þetta tilkynnti Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, á morgunverðarfundi Kompanís, viðskiptaklúbbs Morgunblaðsins, sem haldinn var í Hádegismóum í gær

Magdalena Anna Torfadóttir

magdalena@mbl.is

Hagkaup mun í næsta mánuði opna netverslun með áfengi.

Þetta tilkynnti Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, á morgunverðarfundi Kompanís, viðskiptaklúbbs Morgunblaðsins, sem haldinn var í Hádegismóum í gær.

„Við erum síðustu mánuði búin að smíða vefverslun með áfengi og munum opna í næsta mánuði. Við erum að ákveða úrval og þetta er á lokametrunum,“ segir Sigurður.

Heimsending einnig í boði

Netverslunin mun virka þannig að viðskiptavinir skanna QR-kóða þegar þeir koma inn í verslunina. Á meðan viðskiptavinur velur aðrar vörur í búðinni setur starfsmaður áfengu vörurnar í poka og í lok verslunarferðarinnar sækir viðskiptavinurinn áfengið á þjónustuborðið.

Sigurður hefur áður haft orð á því að lögin um áfengissölu séu óskýr, meðal annars í samtali við mbl.is í fyrrasumar og eins sumarið 2022 þegar Heimkaup hóf að selja áfengi í netverslun sinni.

Hann sagði á fundi Kompanís í gær að upphaflega hefði Hagkaup ætlað að bíða átekta og fá skýrari ramma frá stjórnvöldum hvað varðar sölu á áfengi í gegnum netverslun. Sá rammi hafi þó ekki enn komið fram. Þá segir hann að fyrrverandi dómsmálaráðherra hafi þegar gefið út að þessi starfsemi sé lögleg og að löggjafinn hafi ekki aðhafst vegna málsins.

„Við munum auk þess bjóða upp á heimsendingu á áfengi auk þjónustunnar í versluninni,” segir Sigurður.

Hann kveðst vera spenntur fyrir þessu nýja verkefni og rifjar upp að fyrir 17 árum hafi Hagkaup gert ráð fyrir víndeild í sinni verslun.

„Við héldum að þá yrðu aðeins 1-2 ár í að það yrði löglegt að selja áfengi í versluninni. En sá tími er því miður ekki kominn,“ segir Sigurður.

Mörg verkefni fram undan

Á fundinum tilkynnti Sigurður að Hagkaup væri með mörg ný og spennandi verkefni í bígerð. Meðal annars veisluþjónustu og skyrbar.

„Við höfum verið að gera flotta hluti með veisluþjónustuna okkar og bæta við úrvali þar. Önnur hugmynd sem við höfum verið með er að opna skyrbar sem er nýjung að því leytinu til að við setjum skyr í ísvélar. Þannig að viðskiptavinurinn fær skyr í formi rjómaíss,“ segir Sigurður og bætir við að sá skyrbar nefnist Skálinn.

„Það hefur verið brjálað að gera á þeim bar og við höfum fengið góðar viðtökur,“ segir Sigurður.

Fjölmennt á fundinum

Fjölmennt var á morgunverðarfundi Kompanís, en rúmlega 100 manns sóttu viðburðinn. Sigurður var sem fyrr segir gestur viðburðarins en Stefán Einar Stefánsson, fjölmiðlamaður á Morgunblaðinu, ræddi við hann um sögu fyrirtækisins, reksturinn og ný verkefni á vegum Hagkaups.

Sigurður lýsti því á fundinum hversu mikið vöruúrval Hagkaups er með en keðjan rekur sjö verslanir, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu og eina á Akureyri.

„Þegar það rifjast upp fyrir manni að Hagkaup hefur verið til í 65 ár verður maður að muna að það er ekki sjálfsagt. Maður verður að hreyfa sig hratt og fylgjast vel með því ef maður gerir það ekki þá hverfur maður af markaði eins og svo oft verður með matvöruverslanir.“

Sigurður rifjaði á fundinum upp sögu Hagkaups sem byrjaði með því að Pálmi Jónsson, bóndastrákur úr Skagafirði, átti sér þann draum að fara í verslunarrekstur.

„Hann bjó til verslun í fjósi í Hlíðunum en það húsnæði stendur enn. Hann byrjar í fatnaði og gefur út póstlista. Það fór síðan að vinda upp á sig og nokkrum árum síðar opnar hann saumastofu og flytur inn gallaefni frá Ameríku,“ segir Sigurður.

Hann lýsir því að Pálmi hafi síðan ásamt félögum sínum stefnt að því að reisa íslenskt iðnaðarsvæði í Skeifunni og upp úr því spratt hugmyndin að opna fyrsta íslenska stórmarkaðinn.

„Þá fór boltinn að rúlla og Pálmi var á þessum tíma að pönkast í kerfinu. Tveimur árum síðar varð Hagkaup fyrsta matvörubúðin til að selja mjólk. Sem þótti stórtíðindi á þeim tíma.“

Sigurður segir að Pálma hafi ekki fundist nóg að opna bara fyrsta íslenska stórmarkaðinn. Hann hafði stærri draum um að opna verslunarmiðstöð.

„Menn héldu að hann væri galinn en þetta gerði hann og Kringlan var lengi vel þekkt sem Hagkaupshúsið. Manni finnst magnað hvað einn einstaklingur getur haft stóra drauma og gert þá að veruleika.“

Öflugur viðskiptaklúbbur

Kompaní er viðskiptaklúbbur Morgunblaðsins og mbl.is og er ætlað að sameina starfandi fólk á Íslandi. Kompaní er vettvangur miðla Árvakurs til að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu þar sem hægt er að hlýða á fræðslufundi og fyrirlestra, fylgjast með nýjungum og læra af reynslu annarra sem þekkja hvað það er að reka fyrirtæki á Íslandi. Þá hefur Kompaní staðið fyrir árlegri markaðsráðstefnu í 11 ár.