„Við erum bara ósátt við þetta óljósa umhverfi,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR), varðandi þær fregnir að Hagkaup muni í næsta mánuði opna netverslun með áfengi
Egill Aaron Ægisson
egillaaron@mbl.is
„Við erum bara ósátt við þetta óljósa umhverfi,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR), varðandi þær fregnir að Hagkaup muni í næsta mánuði opna netverslun með áfengi.
Í samtali við Morgunblaðið segir Sigrún að ÁTVR hafi margoft lýst skoðun sinni á netverslunum, utan stofnunarinnar, sem selja áfengi.
Segir hún að það sé annarra að ákveða lögin í landinu og hvernig þeim sé framfylgt.
Höfðu ekki lögsögu
ÁTVR er sjálft með netverslun en samkvæmt áfengislögum er fyrirtækið það eina sem er með einkaleyfi til áfengissölu í smásölu.
Bendir Sigrún á að stofnunin hafi farið fram með dómsmál á sínum tíma sem var vísað frá.
Hafði þá stofnunin kært netverslanirnar Sante og Bjórland fyrir brot á áfengislöggjöf en málið fellt niður á þeirri forsendu að ÁTVR hefði ekki lögsögu til að kæra í málinu.
Segir Sigrún að það hafi bundið enda á afskipti stofnunarinnar af sölu netvöruverslana á áfengi en þeirra skoðun liggi þó algjörlega ljós fyrir.
Sigurður Reynisson, framkvæmdastjóri Hagkaups, sagði á morgunverðarfundi Kompanís, viðskiptaklúbbs Morgunblaðsins, í gærmorgun að Hagkaup hefði upphaflega ætlað að bíða eftir skýrari ramma frá stjórnvöldum varðandi þessa starfsemi en að sá rammi hefði ekki enn komið fram. Tók hann þar fram að fyrrverandi dómsmálaráðherra hefði nú þegar gefið út að starfsemin væri lögleg.
Allir að bíða
Tekur Sigrún í sama streng.
„Það er bara eitthvað sem allir hafa verið að bíða eftir og ekki hefur komið,“ segir Sigrún.
Tekur hún fram að ÁTVR muni ekki fara í svipaðar aðgerðir gegn Hagkaup og farið var í gegn fyrrnefndum netverslunum. Beðið sé eftir skýrari ramma frá stjórnvöldum.
„Okkar skoðun í stuttu máli er bara að þetta er í raun og veru ekki á okkar borði og okkur finnst auðvitað óþægilegt að vinna í umhverfi sem er óljóst. Eins og öllum örugglega.“