„Þetta er alveg óskiljanlegt og ólíðandi stjórnsýsla hjá matvælaráðherra. Tafirnar valda augljóslega miklu tjóni og ég kaupi ekki lengur afsakanir ráðherrans um að ætla að skoða málið nánar,“ segir Teitur Björn Einarsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Þetta er alveg óskiljanlegt og ólíðandi stjórnsýsla hjá matvælaráðherra. Tafirnar valda augljóslega miklu tjóni og ég kaupi ekki lengur afsakanir ráðherrans um að ætla að skoða málið nánar,“ segir Teitur Björn Einarsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið.

Viðbragða hans var leitað við því að enn hefur ekki verið brugðist við umsókn Hvals hf. um leyfi til hvalveiða, skammt er til hefðbundins upphafs vertíðarinnar og ljóst orðið að engar hvalveiðar munu eiga sér stað í sumar.

Teitur Björn vísar því algerlega á bug sem fram hefur komið hjá matvælaráðherra að hvalveiðar standi nú á einhverjum sérstökum tímamótum og að regluverk um veiðarnar sé flókið.

„Veiðarnar voru heimilaðar síðasta haust og ekkert hefur breyst í regluverkinu síðan. Það afsakar ekkert þessa töf. Þá er matvælaráðherra ekki heimilt að leggja til grundvallar ólögbundin og/eða ómálefnaleg sjónarmið sem ekki eiga sér stoð í lögum um hvalveiðar,“ segir Teitur Björn.

Styður þú þennan ráðherra?

„Ég styð þessa ríkisstjórn til góðra verka, en ætlast til þess að ráðherrarnir fari að lögum. Það er ekki hægt að styðja svona stjórnsýslu og hún lítur ekki vel út að mínu mati. Þetta er mjög alvarlegt mál,“ segir hann. » 6

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson