50 ára Gottskálk er Garðbæingur og býr þar en ólst einnig upp í Örebro í Svíþjóð frá 4-11 ára aldri. Hann er læknir frá Kaupmannahafnarskóla og lauk framhaldsmenntun í lyf- og hjartalækningum frá Gautaborg

50 ára Gottskálk er Garðbæingur og býr þar en ólst einnig upp í Örebro í Svíþjóð frá 4-11 ára aldri. Hann er læknir frá Kaupmannahafnarskóla og lauk framhaldsmenntun í lyf- og hjartalækningum frá Gautaborg. Gottskálk er sjálfstætt starfandi hjartalæknir og starfar einnig tvo daga í viku á HSU. „Ég á fimm börn svo mestur tíminn fer í vinnu og fjölskyldu og svo er ég mikill golfáhugamaður.“


Fjölskylda Eiginkona Gottskálks er Anný Rós Guðmundsdóttir, f. 1991, læknir á Húðlæknastöðinni. Synir þeirra eru Guðmundur, f. 2016, Baldur, f. 2019, og Kristófer, f. 2022, og synir Gottskálks frá fyrra sambandi eru Gizur, f. 2001, og Þórhallur, f. 2009. Foreldrar Gottskálks eru hjónin Gizur Gottskálksson, f. 1950, hjartalæknir, og Elín Sigfúsdóttir, f. 1951, búsett í Garðabæ.