Rakel María elskar góða ilmi.
Rakel María elskar góða ilmi.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Öll eigum við okkur uppáhaldslykt, ilmvatnslykt. Fátt er betra en að setja á sig góðan ilm að morgni dags, það gerir góðan dag enn betri. Ilmvatnslykt getur kallað fram sterkar tilfinningar, vakið ljúfar minningar og ýtt undir vellíðan hjá þeim sem ber hana

Öll eigum við okkur uppáhaldslykt, ilmvatnslykt. Fátt er betra en að setja á sig góðan ilm að morgni dags, það gerir góðan dag enn betri. Ilmvatnslykt getur kallað fram sterkar tilfinningar, vakið ljúfar minningar og ýtt undir vellíðan hjá þeim sem ber hana.

Rakel María Hjaltadóttir, förðunarfræðingur, þjálfari og hlaupadrottning, veit svo sannarlega hvað hún syngur þegar kemur að góðum förðunarvörum og ilmvötnum.

Smartland fékk hana því til að rifja upp fimm ilmvötn sem hafa verið í uppáhaldi í gegnum ævina.

Pink Sugar – Givaudan

„Ég eignaðist fyrsta ilmvatnið mitt, Pink Sugar, fyrir tuttugu árum.

Ilmvatnið kom á markað árið 2004 og varð strax mjög vinsælt. Ég þráði að eignast það og hoppaði hæð mína af gleði daginn sem ég fékk ilmvatnið í hendurnar, þá gat ég lyktað eins og kandífloss allan liðlangan daginn.

Pink Sugar er ekki ilmvatn sem ég myndi setja á mig í dag, þó svo ég fengi borgað fyrir það, en tilhugsunin um þennan sykursæta ilm vekur ávallt nostalgíu.“

Fantasy – Britney Spears

„Ilmvatnið sem einkennir hápunkt gelgjuskeiðsins hjá mér er Fantasy úr smiðju poppstjörnunnar Britney Spears.

Þú varst ekki maður með mönnum nema þú ættir þessa lykt.“

Amor Amor – Cacharel

„Þessi ilmur var lengi í uppáhaldi og ég notaði hann í mörg ár. Amor Amor-ilmvatnið var vinsælt á sínum tíma og vekur góðar minningar.“

Good Girl – Carolina Herrera

„Þessi ilmur er í hvað mestu uppáhaldi hjá mér. Lyktin er seiðandi og hentar vel við öll tækifæri. Ég hef notað þetta ilmvatn í nokkur ár og er alltaf örugg með það á mér.“

Brazilian Crush Cheirosa 71 – Sol de Janeiro

„Þessi lykt er nýjasta uppáhaldið. Þetta er líkamssprey og ber með sér vanillu-karamelluilm. Lyktin er óútskýranlega góð.

Ég elska að spreyja ilminum um allan líkamann og þá sérstaklega í hárið þó svo ég beri á mig annað ilmvatn með. Þetta sprey er klárlega komið til að vera hjá mér.“