33 Luka Doncic og félagar í Dallas byrjuðu á mikilvægum útisigri.
33 Luka Doncic og félagar í Dallas byrjuðu á mikilvægum útisigri. — AFP/Stephen Maturen
Slóveninn Luka Doncic var í lykilhlutverki hjá Dallas Mavericks þegar liðið vann góðan útisigur á Minnesota Timberwolves, 108:105, í fyrsta úrslitaleik liðanna í Vesturdeild NBA í fyrrinótt. Doncic skoraði 33 stig í leiknum, gaf átta stoðsendingar og tók sex fráköst

Slóveninn Luka Doncic var í lykilhlutverki hjá Dallas Mavericks þegar liðið vann góðan útisigur á Minnesota Timberwolves, 108:105, í fyrsta úrslitaleik liðanna í Vesturdeild NBA í fyrrinótt. Doncic skoraði 33 stig í leiknum, gaf átta stoðsendingar og tók sex fráköst. Þar með náði Dallas undirtökum í einvíginu en liðin mætast aftur í Minneapolis í kvöld. Anthony Edwards skoraði 19 stig fyrir Minnesota, tók 11 fráköst og átti 8 stoðsendingar.