[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það er alltaf verið að segja við mannfólkið að það þurfi að borða mat í litum og úr öllum fæðuflokkum en það á líka við um tískuna. Við þurfum liti og helst eitthvað blóðappelsínulitað fyrir sumarið

Það er alltaf verið að segja við mannfólkið að það þurfi að borða mat í litum og úr öllum fæðuflokkum en það á líka við um tískuna. Við þurfum liti og helst eitthvað blóðappelsínulitað fyrir sumarið. Ný silkiskyrta eða kjóll getur breytt heildarmynd klæðaskápsins og hleypt birtu og yl inn í hann. Það er þó ekki bara fataskápurinn sem þarf upplyftingu. Húðin þarf sólarvörn, C-vítamínvökva og nýjan varalit.